Jæja, ég get ekki haldið þessu lengur inni. Ég hef byrgt þetta lengi inni og reynt að halda aftur af mér, en ég ræð ekki við þessar tilfinningar. Ég ætla að taka af skarið og láta allt flakka.
Guðrún:
Viltu giftast mér??
Við eigum svo vel saman Guðrún, ég gæti ekki lifað án þín. Komdu með mér til Kanada, við getum byrjað upp á nýtt þar. Ég lofa að gæta þín og sjá til þess að þig skorti ekkert.
Einar, engin leiðindi er það? Ég bara held að við eigum betur saman, that´s all. Guðrún, ég vona að þú svarir mér sem fyrst, og það játandi. Ég gæti ekki hugsað mér lífið án þín.

Ég keypti svona handa okkur ef svo skyldi að þú myndir segja já.
Einar hefur aldrei gefið þér hring. Bara eyrnalokka. Þú ert ekki einu sinni með göt í eyrunum. Vertu með mér Guðrún, þú sérð að þú ert miklu betur á þig komin með mér. Ég elska þig.
Þín.
Anna M ekki ká.